Hversvegna stjórnlagaþing?

 Sem áhugamaður um betra samfélag afréð ég að bjóða mig fram til stjórnlagaþings.  Á stjórnlaga-þinginu gefst mér færi á að vinna að framgangi þeirra góðu mála sem ég hef bjargfasta sannfæringu fyrir að geti fært íslenskt samfélag fram á veginn.  Markmiðið er að skapa réttlátt samfélag; lýðræði og gegnsæi eru bestu leiðirnar til að þess.

Þjóðareign á auðlindum lands og sjávar, þar sem þjóðin öll fær að njóta afraksturs auðlindanna, er ekki aðeins réttlætismál heldur einnig til þess fallið að stuðla að efnhagslegu jafnvægi og tryggja velferð þjóðarinnar.

Þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg málefni veita stjórnmálamönnum brýnt aðhald.  Þjóðin verður að eiga möguleika á efna til þjóðaratkvæðagreiðslu án þess að til þess þurfi atbeina Forseta Íslands eða Alþingis þó þær leiðir þurfi einnig að vera fyrir hendi.

Þær hugmyndir sem ég lýsi hér eru ekki nýjar af nálinni en fyrst nú gefst íslensku þjóðinni færi á að vinna þeim brautargengi. 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband