SETJUM ICESAVE AFTUR FYRIR OKKUR
23.3.2011 | 23:05
Um flest sem lýtur að Icesave þarf ekki að fjölyrða. Þar ber hæst að enginn vill taka á sig þær byrðar og allir íslenskir ráðherrar og embættismenn sem að málinu hafa komið, allt frá hausti 2008, hafa lofað Bretum og Hollendingum að um málið yrði samið. Icesave fer heldur ekki burt þó við höfnum því í atkvæðagreiðslu.
Jafnvel þó svo að Bretar og Hollendingar kysu að fara ekki í mál við okkur, hversu lengi viljum við vera í óvissu um hvort þeir muni gera það eða ekki? Þegar svo til málssóknarinnar kæmi, ef af henni verður, þá virðist mér með einföldum vongildismælingum að við þurfum að hafa 90% vissu fyrir því að við vinnum málið, til að vera jafn vel sett og við erum nú.
ÓVISSAN Í HÖNDUM BRETA OG HOLLENDINGA
Við það að hafna Icesave lendum við eina ferðina enn í óvissu sem við vitum ekki hversu lengi mun standa. Framþróun íslenskra efnahagsmála, möguleikinn á að skapa vinnu og velferð, veltur á því að eyða óvissu. Með Icesave frá, þá er einni óvissunni færra með fullri sæmd allra sem að málinu hafa komið. Óvissan ein kostar okkur fjármuni; að öllum líkindum miklu meiri fjármuni en við gætum sparað okkur með að hafna Icesave.
Það er ódýrt að segja látum þá bara höfða mál" eins og hópur lögmanna og fleiri hafa boðað. Þeir sem slíkt segja vita sem er að þeir munu aldrei þurfa að standa við stóru orðin, þeir verða aldrei sóttir til ábyrgðar þó málið tapist. Þeir sem þannig tala vita að ummælin eru útgjaldalaus af þeirra hálfu. Í þessari stöðu er lítið mál fyrir áhættusækna einstaklinga að tala digurbarkalega. Öll þurfum við svo, jafnt hin áhættufælnu sem hin áhættusæknu, að bera okkar hluta hinna óhemjulegu byrða ef ráðum digurbarkanna er fylgt og allt fer á versta veg.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook