VILL LÍÚ SÁTT UM FISKVEIÐAR ?

Allt útlit er fyrir að LÍÚ ætli að hafna því að ná sátt um fiskveiðikerfið og kjósa að halda atvinnu grein inni áfram í óvissu, einstökum útgerðum og samfélaginu öllu til verulegs tjóns. Því miður þá hefur LÍÚ, allt frá upphafi kvótakerfisins, aldrei ljáð máls á minnstu eftirgjöf af sinni hálfu um sanngjarnt veiðigjald. Sáttin við þjóðina hefur öll átt að vera á einn veg, óbreytt ástand. LÍÚ ætti að vera fyrir löngu búið að átta sig á að greiðsla hæfilegs afnotagjalds til eigenda fiskimiðanna, þjóðarinnar, er besta leiðin til að skapa sátt um atvinnugreinina.

Hæfilegt og sanngjarnt leigugjald er einfaldast að finna með því að gefa útgerðarmönnum kost á að bjóða í þann kvóta sem þjóðin, eigandi kvótans, setur á markað hverju sinni. Enda bjóða menn þá í samræmi við greiðslugetu og hæfi til að gera verðmæti úr aflanum. LÍÚ treystir aftur móti ekki eigin félagsmönnum til að þekkja best hversu háar fjárhæðir þeir geti greitt fyrir veiðleyfin og telja það því ekki vera færa leið að leyfa útvegsmönnum að bjóða í kvóta t.d. samkvæmt svokallaðri „tilboðsleið“. En tilboðsleiðin, sem fjallað var um í nefnd sjávarútvegsráðherra, virðist ætla að verða sú leið sem hvað víðtækust sátt getur orðið um í samfélaginu.

Hvers virði er það útgerðinni að losna við óvissuna?

Fyrirkomulag á fiskveiðum, sem ekki leiðir til niðurstöðu sem þjóðin sættir sig við, eru til þess fallnar að halda greininni í áframhaldandi óvissu. Ótti LÍÚ við tilboðsleiðina, þar sem einstökum útgerðum gefst færi á að bjóða í afnot af þeim kvóta sem losnar á hverju ári, ætti að vera fullkomlega ástæðulaus. Því, eins og áður er rakið, þá eru það einmitt þeir útgerðarmenn sem líklegastir eru til að hámarka aflaverðmætið sem fá munu þann kvóta sem losnar.

Krafa LÍÚ ætti að standa til þess að hafa áhrif á útfærslu tilboðsleiðarinnar, setja fram kröfu um að allur fiskur verða kvótasettur og tilboða verði leitað í allar fisktegundir. Framsýnir útgerðarmenn vita að ef ekki verður leitað sátta við þjóðina í þessum efnum þá mun áfram verða kroppað í kvótakerfið með hverri nýrri ríkisstjórn. Nýjar úthlutanir munu verða framhjá kvóta, til sérstakra viðfangsefna, líkt og verið hefur. Slíkt munum við sjá í enn ríkari mæli eftir því sem fram í sækir, sjái LÍÚ ekki að sér og leggi sitt af mörkum til þjóðarsáttar um fiskveiðar.

Viljum við nýtt Verðlagsráð sjávarútvegsins?

Mörg okkar munum enn eftir Verðlagsráði sjávarútvegsins, þar sem svo átti að heita að útgerðarmenn og sjómenn komu saman til að „semja“ um fiskverð. Daginn eftir hverja verðákvörðun var gengi krónunnar fellt „til að tryggja rekstragrundvöll útgerðarinnar“. Hætt er við að hinn nýji vettvangur „samninga“ útgerða og ríkisstjórnar um kvótaverð, samkvæmt hinni svokölluðu „samningaleið“, verði sama marki brenndur. Það er með ólíkindum að nokkur kjósi að taka upp slíkar miðstýrðar ákvarðanir að nýju. Einstakar útgerðir hljóta að vera fullfærar um það sjálfar að meta greiðsluhæfi sitt til kvótakaupa og geta þ.a.l. boðið í þann afla sem þær telja sig hafa getu og möguleika til að breyta í verðmæta útflutningsafurð, svo fremi þær fái tækifæri til þess, t.d. samkvæmt svokallaðri tilboðsleið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband